Fotbolti.net
30.07.26 - 14:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Stjörnunnar í Finnlandi: Fyrirliðinn kemur inn

Gummi Kristjáns kemur inn í liðið frá fyrri leiknum.

Gummi Kristjáns kemur inn í liðið frá fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 16:00 mætir Stjarnan finnska liðinu Ilves í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Leikurinn fer fram í Tampere í Finnlandi og er Stjarnan með eins marks forystu eftir fyrri leikinn. Það var Guðmundur Baldvin Nökkvason sem skoraði eina markið fyrir viku síðan á Samsungvellinum í Garðabæ.

Frá þeim leik gerir Jón Þór Hauksson eina breytingu. Fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson kemur inn fyrir Sindra Þór Ingimarsson sem tekur sér sæti á bekknum. Frá deildarleiknum gegn ÍA síðasta sunnudag gerir Jón Þór fjórar breytingar. Þeir Alex Þór, Árni Vilhjálmsson, Bjarki Hausson og Daníel Finns taka sér sæti á bekknum og þeir Benedikt Warén, Emil Atlason, Þorri Mar Þórisson og Guðmundur Baldvin snúa aftur í byrjunarliðið.
Lestu um leikinn: Ilves 0 - 0 Stjarnan
Leikurinn verður í beinni útsendingu á SÝN Sport og í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Byrjunarlið Ilves

Faris Krkalic, Matias Rale, Oliver Pettersson, Sauli Väisänen, Teemu Hytönen, Kalle Wallius, Anton Popovitch, Tatu Miettunen, Oskari Multala, Jesse Kilo, Jardell Kanga

Byrjunarlið Stjarnan

Árni Snær Ólafsson, Gustav Kjeldsen, Þorri Mar Þórisson, Guðmundur Kristjánsson (fyrirliði), Örvar Eggertsson, Jóhann Árni Gunnarsson, Birnir Snær Ingason, Guðmundur Baldvin Nökkvason, Emil Atlason, Benedikt V. Warén, Örvar Logi Örvarsson

Emil Atlason var ekki með gegn ÍA.

Emil Atlason var ekki með gegn ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.