30.07.26 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
Lofar að hefja ítalska landsliðið til vegs og virðingar

Roberto Mancini er tekinn aftur við Ítalíu.

Mynd: EPA

Claudio Ranieri og Roberto Mancini.

Roberto Mancini baðst afsökunar á fréttamannafundi eftir að hafa verið ráðinn landsliðsþjálfari Ítalíu í annað sinn. Það eru þrjú ár síðan hann sagði upp starfinu til að elta peningana í Sádi-Arabíu.
„Ég biðst innilegrar afsökunar. Þetta var eins og að missa ástina í lífi sínu. Ég gerði eitthvað sem ég hefði ekki átt að gera. Ég biðst afsökunar á því sem hefur gerst síðustu þrjú ár. Ég ætla að koma ítalska landsliðinu aftur þangað sem það á heima," segir Mancini.

TENGT EFNI
Fíaskói Ítala lokið - Mancini snýr aftur (Staðfest)
Ítalía hefur mistekist að komast á þrjú síðustu heimsmeistaramót. Ítalía varð Evrópumeistari undir stjórn Mancini 2021 en hann sagði upp 2023 og tók við landsliði Sádi-Arabíu tveimur vikum síðar.
Fyrsti leikurinn í endurkomu Mancini verður gegn Belgíu í Þjóðadeildinni þann 25. september á Ólympíuleikvangnum í Róm. Mancini býst við blendnum móttökum.
„Ég geri mér grein fyrir því að sumir eru ósáttir við mig. Ég vona að liðið muni spila það vel að fólk muni kannski fyrirgefa mér."
Mancini var fjórði kostur í starfið núna. Carlo Ancelotti og Pep Guardiola afþökkuðu það áður en hætt var við ráðningu á Andrea Pirlo af pólitískum ástæðum vegna tengsla hans við rússneskt veðmálafyrirtæki.