30.07.26 - 16:00
Kári Snorrason
Fulham að sækja tvo frá Real Madrid

Arbeloa sækir í kunnugleg andlit.

Mynd: EPA

Gonzalo Garcia.

Mynd: EPA

Arbeloa sækir í kunnugleg andlit.

Mynd: EPA
Alvaro Arbeloa, nýráðinn stjóri Fulham er að sækja tvo leikmenn frá sínu gamla félagi, Real Madrid.
Leikmennirnir tveir sem um ræðir eru þeir Cesar Palacios, 21 árs miðjumaður, og Gonzalo Garcia, 22 ára gamall framherji.
Leikmennirnir tveir sem um ræðir eru þeir Cesar Palacios, 21 árs miðjumaður, og Gonzalo Garcia, 22 ára gamall framherji.

TENGT EFNI
Arbeloa vill fá leikmenn með sér frá Real
Búist er við að þeir báðir verði tilkynntir sem nýir leikmenn liðsins á næstunni. Garcia er keyptur á 40 milljónir evra en Palacios á tíu milljónir vera.
Arbeloa þekkir leikmennina tvo vel en hann þjálfaði þá báða hjá aðalliði Real og þar áður hjá unglinga- og varaliði spænska félagsins.
Hann tók við stjórnartaumunum á Fulham í sumar eftir að Marco Silva tók við Benfica. Hann var bráðabirgðastjóri Real Madrid seinni hluta síðasta tímabils eftir að Xabi Alonso var látinn taka poka sinn.

Cesar Palacios í leik gegn U19 liði Íslands fyrir þremur árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét