Fotbolti.net
30.07.26 - 15:24
Elvar Geir Magnússon

Einróma samþykkt hjá UEFA að sniðganga HM ef áætlanir FIFA ná fram að ganga

Infantino og Ceferin.

Infantino og Ceferin.

Canon

Mynd: EPA

Öll 55 aðildarlönd UEFA, Ísland þar á meðal, hafa kosið með því að sniðganga HM í mótmælaskyni ef áætlanir FIFA um að hleypa fjárfestum að HM í fótbolta og fleiri innviðum sambandsins ná fram að ganga.

Ákvörðunin var tekin á neyðarfundi í dag. UEFA hefur í tveimur tilkynningum mótmælt áætlunum FIFA og hugur evrópska fótboltasambandsins var staðfestur í atkvæðagreiðslu í dag.
Infantino tilkynnir KSÍ að sambandið fái yfir fimm milljarða styðji það áform sín
TENGT EFNI

Infantino tilkynnir KSÍ að sambandið fái yfir fimm milljarða styðji það áform sín

Sniðgangan myndi ná yfir allar FIFA keppnir, þar á meðal HM landsliða og félagsliða í karla- og kvennaflokki. Hún yrði virkjuð ef aðildarlönd FIFA kjósa með tillögu Gianni Infantino, forseta FIFA.

Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ var neyðarfundur UEFA um tveggja klukkutíma langur og mun stjórn KSÍ funda um niðurstöðu hans á morgun.

„Við höfnum einróma og afdráttarlaust tillögu FIFA um að framselja eignarhluti í heimsmeistaramótinu og öðrum mótum FIFA til einkafjárfesta,“ segir í yfirlýsingu UEFA.

„Ekki er hægt að líta á heimsmeistaramótið sem fjárfestingarvöru. Það er ein af mikilvægustu arfleifðum fótboltans. Mótið hefur mótast í gegnum kynslóðir fyrir tilstilli leikmanna, landsliða og stuðningsmanna um allan heim. Engan hluta þess ætti nokkurn tímann að framselja til einkafjárfesta. Heimsmeistaramótið er ekki til sölu.“
Infantino og Þorvaldur Örlygsson. Myndin var tekin 2024.

Infantino og Þorvaldur Örlygsson. Myndin var tekin 2024.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.