Fotbolti.net
30.07.26 - 17:46
Guðmundur Jónasson

Hamrarnir styrkja sig með þremur nýjum leikmönnum

Hamrarnir tryggðu sér sæti í úrslitakeppni 5.deildar í seinasta leik

Hamrarnir

Hamrarnir

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Hamrarnir styrktu sig með þremur nýjum leikmönnum á gluggadeginum í 5.deildinni 29.júlí.

Hamrarnir tryggðu sér sæti í úrslitakeppni 5.deildar á miðvikudag með því að vinna BF108 5-2. Beint eftir leikinn tryggðu þeir sér 3 nýja leikmenn til að klára tímabilið það eru þeir Þorvaldur Daði Jónsson, Helgi Már Þorvaldsson og Halldór Jóhannesson.

Þorvaldur hefur spilað með KF, Dalvík/Reyni og KA þar sem hann kom við sögu í einum leik í efstu deild, hann spilaði seinast með Dalvík/Reyni í 2.deild þar sem hann skoraði 5 mörk í 23 leikjum.

Helgi már lék 2 leiki með Hömrunum árið 2023 en hélt eftir það til KF þar sem hann lék 12 leiki og skoraði í þeim 1 mark.

Halldór Jóhannesson hefur leikið með KF,Magna og Dalvík/Reyni í meistaraflokk og lék lengst með Dalvík/Reyni í 2 og 3.deild, hann á að baki 123 meistaraflokksleiki og hefur skorað í þeim 6 mörk.

Hamrarnir eru hinsvegar að missa 2 mikilvæga menn út í háskólaboltann í Bandaríkjunum það eru þeir Björn ísfeld Jónasson og Sigurður Þórisson.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.