Fotbolti.net
30.09.17 - 11:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stefanía: Þetta var markmiðið og við stóðum við það

Auglýsing
Stefanía Valdimarsdóttir, best í 2. deild kvenna.

Stefanía Valdimarsdóttir, best í 2. deild kvenna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Stefanía Valdimarsdóttir, leikmaður Aftureldingar/Fram, var valin besti leikmaður 2. deildar kvenna í sumar af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. Tilkynnt var um þetta á lokahófi Fótbolta.net í gær.

Sjá einnig:
Lið ársins og bestu leikmenn í 2. deild kvenna 2017

Hún skoraði 14 mörk í 16 leikjum og var markahæsti leikmaður deildarinnar, auk þess að vera valin best.

„Bæði og,\" sagði hún aðspurð og hvort tilnefningin hefði komið sér á óvart. „Það er alltaf gaman að fá titil, en ég var náttúrulega markahæst og þetta er mjög skemmtilegt.\"
Afturelding/Fram var með besta liðið í 2. deild kvenna og mun spila í 1. deild kvenna að ári.

„Það gekk allt eftir okkar óskum,\" sagði hún um tímabilið. „Þetta var markmiðið okkar og við stóðum við það.\"

Liðið mun áfram undir merkjum Aftureldingar og Fram og stefnan er sett á að fara beint upp í Pepsi-deildina.

„Er það ekki alltaf markmiðið?\" sagði Stefanía að lokum aðspurð um Pepsi-deildar markmið.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.