Fotbolti.net
17.07.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Staðfestir að Vestri spilar aftur í Laugardalnum - „Ómetanleg aðstoð"

AVIS völlurinn í Laugardal.

AVIS völlurinn í Laugardal.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri mætir lettneska liðinu RFS í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni á næstu vikum. Fyrri leikurinn fer fram í Lettlandi næsta fimmtudag og ljóst er að heimaleikur Vestra fer fram á Þróttaravellinum, AVIS vellinum, í Laugardal.

Vestramenn höfðu gert sér vonir um að mögulega yrði hægt að spila heimaleikinn á Kerecis-vellinum á Ísafirði en það fékkst ekki leyfi fyrir því frá UEFA.

Samúel Samúelsson, meðstjórnandi í stjórn fótboltadeildar Vestra, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Qarabag í Laugardalnum í gær.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 3 Qarabag
„Þróttarar hafa tekið vel á móti okkur og ekki í fyrsta skiptið sem Þróttur stekkur undir bagga með Vestra. Þróttarar hafa reynst okkur gríðarlega vel, bæði þegar við gátum ekki spilað á heimavelli í Bestu deildinni og svo voru þeir klárir að hýsa okkur núna. Ég vil þakka Þrótti kærlega fyrir, þetta er ómetanleg aðstoð sem við höfum fengið frá þeim," sagði Sammi.

„Það er klárt (að við spilum heimaleikinn gegn RFS líka í Laugardalnum). Ástæðan er sú að það er of langt frá Ísafirði á alþjóðaflugvöll. Við fáum ekki undanþágu á það eins mikið og við hefðum viljað spila heima. Við verðum því að spila hérna í Reykjavík," bætti Sammi við. Viðtalið í heild sinni má nálgast hér að neðan.

Heimaleikur Vestra gegn RFS fer fram fimmtudaginn 30. júlí.
Samúel Samúelsson

Samúel Samúelsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarliðið kom Samma á óvart - „Ég var pínu hræddur"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.