Fotbolti.net
17.07.26 - 13:23
Elvar Geir Magnússon

Forest með nýtt tilboð í Bergvall

Forest með nýtt tilboð í Bergvall
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest mun gera 45 milljóna punda tilboð í Lucas Bergvall, leikmann Tottenham. Í síðustu viku var 38 milljóna punda tilboði í þennan tvítuga sænska miðjumann hafnað.
Samkvæmt heimildum breska ríkisútvarpsins vill Bergvall færa sig um set og fara á City Ground en hann fékk takmarkaðan spilatíma undir stjórn Roberto De Zerbi og spilaði oft ekki í sinni uppáhalds stöðu sem varnartengiliður.

Bergvall kom til Tottenham frá Djurgarden 2024, í apríl 2025 skrifaði hann undir samning til 2031.

Bergvall á fjórtán landsleiki fyrir Svíþjóð og spilaði fyrir þjóð sína á HM en liðið féll úr leik gegn Frökkum í 32-liða úrslitum.

Auk Bergvall vill Forest fá inn annan leikmann á miðsvæðið eftir að Elliot Anderson var seldur á metfé til Manchester City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.