Fotbolti.net
17.07.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Líkleg byrjunarlið úrslitaleiks HM - Ofurvaramaðurinn Lautaro

Lautaro Martínez kom af bekknum og skoraði sigurmarkið gegn Englandi.

Lautaro Martínez kom af bekknum og skoraði sigurmarkið gegn Englandi.

Canon

Mynd: EPA

Spánverjar eru af flestum taldir sigurstranglegastir í úrslitaleik HM á sunnudag þar sem þeir mæta ríkjandi heimsmeisturum Argentínu. Leikurinn fer fram á MetLife vellinum í New Jersey og hefst klukkan 19.

Lamine Yamal og Lionel Messi eru leikmennirnir sem eru á flestum vörum. Yamal kom tæpur inn í mótið og hefur ekki skinið eins skært og margir bjuggust við, á meðan Messi hefur verið magnaður.

Spánverjar hafa verið vaxandi á HM og voru geggjaðir í sigrinum gegn Frakklandi. Líklegt er að þeir tefli fram sama byrjunarliði og í þeim leik, svo Pedri verður væntanlega aftur meðal varamanna.

Það er erfiðara að rýna í líklegt byrjunarlið Argentínu enda komu varamennirnir öflugir inn gegn Englandi. Það má samt búast við því að Lautaro Martínez, sem skoraði sigurmarkið, fái aftur það hlutskipti að byrja á bekknum en koma inn ef það þarf að krydda sóknarleikinn.
HM um helgina - Hver verður heimsmeistari?
TENGT EFNI

HM um helgina - Hver verður heimsmeistari?



Byrjunarlið Spánverja verður líklega óbreytt.

Byrjunarlið Spánverja verður líklega óbreytt.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.