Fotbolti.net
16.07.26 - 23:14
Brynjar Ingi Erluson

Argentínumenn furðu lostnir yfir ákvörðunum Tuchel

Thomas Tuchel

Thomas Tuchel

Canon

Mynd: EPA

Miguel Delaney hjá Independent segir að Argentínumönnum hafi komið verulega á óvart þegar Englendingar drógu sig aftar á völlinn eftir að hafa komist í 1-0 í undanúrslitum HM í gær.
Skoða frammistöðu Tuchel eftir HM - „Verðum að gera það til að fá stóra vinninginn“
TENGT EFNI

Skoða frammistöðu Tuchel eftir HM - „Verðum að gera það til að fá stóra vinninginn“

Anthony Gordon kom Englendingum yfir snemma í síðari hálfleik eftir frábæra sendingu frá Morgan Rogers.

England hafði verið sterkari aðilinn á flestum sviðum, en eftir vatnspásuna gerði Thomas Tuchel varnarsinnaða breytingu þegar hann tók Gordon af velli og setti Ezri Konsa inn á í hans stað.

Skömmu síðar komu Dan Burn og Nico O'Reilly einnig inn á.

Miguel Delaney segir leikmenn og þjálfarateymi Argentínu hafa verið undrandi á því að Englendingar skyldu leggjast jafn aftarlega á völlinn, svo skömmu eftir að hafa komist yfir.

Argentínumenn höfðu rætt það í hálfleik að Bukayo Saka og Noni Madueke gætu reynst hættulegir með hraða sínum og bjuggust við að þeir kæmu inn á í síðari hálfleik. Hvorugur þeirra kom þó við sögu.

Lionel Scaloni og þjálfarateymi hans töldu helsta veikleika Argentínu felast í því ef leikurinn teygðist og Englendingar fengju svæði til að sækja inn fyrir vörnina.

Í staðinn dró England sig aftar, gaf frumkvæðið frá sér og tapaði að lokum leiknum.

Tuchel hefur þó þvertekið fyrir að það hafi verið ætlunin. Hann segist ítrekað hafa kallað eftir því að leikmennirnir stigu framar á völlinn, en þau skilaboð hafi ekki skilað sér.

Þegar ljóst varð að England ætlaði að liggja aftar setti Scaloni allt undir. Lautaro Martínez kom inn á fyrir vinstri bakvörðinn Nicolas Tagliafico og það var einmitt Martínez sem skoraði sigurmarkið seint í uppbótartíma.

Enska fótboltasambandið kennir Tuchel ekki um tapið og er sagt ánægt með störf hans til þessa. Innan sambandsins er talið að hann sé að reyna að vinna bug á ákveðnu menningarlegu vandamáli innan liðsins.

Ein kenningin er sú að það hafi einfaldlega verið eðlislæg viðbrögð leikmannanna að falla aftar eftir að hafa komist yfir í jafn stórum leik.

Tuchel vill breyta þessu hugarfari og er vongóður um að fá tækifæri til að leiða England á Evrópumótinu eftir tvö ár.
Argentínumenn furðu lostnir yfir ákvörðunum Tuchel
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.