Fotbolti.net
17.07.26 - 10:02
Kári Snorrason

FIFA fylgir bandarískri hefð og gefur sigurvegurunum HM-hringa

Hringirnir verða alls 2026 talsins.

Hringirnir verða alls 2026 talsins.

Canon

Mynd: FIFA

FIFA mun afhenda sérstaka heimsmeistarahringa til sigurvegara HM eftir úrslitaleiksinn á sunnudag milli Argentínu og Spánar.

Sambandið tilkynnti um fyrirætlanirnar á vefsíðu sinni í morgun en þetta verður í fyrsta sinn sem sigurliðið fær slíka hringi.
Álíka sigurhringar eru hefð í bandarískum íþróttum og eru sigurvegarar NFL- og NBA deildinni meðal annars verðlaunaðir með þeim.

Þrjátíu hringir fara til heimsmeistarana og fara 1996 hringir til viðbótar í sölu til aðdáenda. Alls verða hringirnir 2026 talsins.

Á annarri hlið hringsins er HM bikarinn en hin hliðin verður hönnuð eftir þjóðinni sem vinnur. Hver hringur verður áletraður með nafni eigandans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.