Fotbolti.net
16.07.26 - 23:18
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Brynjar Björn: Á meðan það liggur á milli hluta þá er hann ekki með okkur

Auglýsing
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

„Óþarfi að tapa leiknum,“ sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis, eftir 3-2 tap gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum í kvöld. 

Lestu um leikinn: Afturelding 3 - 2 Leiknir R.

„Við fáum, í fyrri hálfleik sérstaklega, jú jú þeir skora fyrsta markið og byrja betur en við en við komumst strax inn í leikinn og mér fannst leikurinn frekar jafn allan tímann. Í stöðunni 2-1 áttum við færi líka, síðan kemur þeirra eina mark kemur úr 30 metra skoti sem við bara gerðum ekki nóg og vel við og frákast upp úr því og meira var það ekki. Svo bara reyndum við og reyndum við og náðum einu marki núna í lokinn til baka en það var bara ekki nægur tími til að sækja annað,“ hélt hann svo áfram.

Shkelzen Veseli, leikmaður Leiknis, hefur verið orðaður við Val síðustu daga en hann var ekki í leikmannahópnum í dag. Aðspurður hvort Shkelzen hafi ekki verið í hóp vegna þessa og hvort það sé möguleiki að hann fari frá Leikni núna í sumarglugganum en ekki eftir timabil eins og talað hefur verið um segir hann:

„Já það er eitthvað verið að tala um það. Á meðan það liggur á milli hluta þá er hann ekki með okkur. Það er svona, við erum að hjálpa honum líka, að hann bara meiðist ekki hérna í dag og það detti upp fyrir þannig að það er bara staðan og verður þannig á meðan glugginn er opinn hugsa ég. Ekkert meira um það að segja.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.