Fotbolti.net
17.07.26 - 12:16
Kári Snorrason

Níu sem gætu fært sig um set eftir HM

Barcola er eftirsóttur.

Barcola er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Það styttist í annan endann á heimsmeistaramótinu og félagslið utan úr heimi beina sjónum sínum í auknum mæli að félagaskiptamarkaðnum.

Stór nöfn á HM hafa þegar skipt um lið, menn á borð við Youri Tielemans, Elliot Anderson og Marc Cucurella.

BBC tók saman lista yfir níu leikmenn sem voru á HM og gætu fært sig um set í sumar.
<b>Ayyoub Bouaddi (Marokkó, Lille):</b> Liðsfélagi Hákonar Arnars hjá Lille heillaði með Marokkó á HM. Þrátt fyrir að vera aðeins átján ára stýrði hann miðjunni vel og eru stórlið á borð við Chelsea, Man City, Real Madrid, Barcelona og PSG á eftir honum.

Ayyoub Bouaddi (Marokkó, Lille): Liðsfélagi Hákonar Arnars hjá Lille heillaði með Marokkó á HM. Þrátt fyrir að vera aðeins átján ára stýrði hann miðjunni vel og eru stórlið á borð við Chelsea, Man City, Real Madrid, Barcelona og PSG á eftir honum.

Canon

Mynd: EPA

<b>Yan Diomande (Fílabeinsströndin, RB Leipzig):</b> Þessi nítján ára kantmaður hefur verið undir smásjá Liverpool í þó nokkurn tíma. Félagið var ekki reiðubúið að greiða 100 milljón punda verðmiðan sem settur var á hann en PSG og Man Utd hafa jafnframt áhuga á honum og vill hann ólmur fara til Frakklands.

Yan Diomande (Fílabeinsströndin, RB Leipzig): Þessi nítján ára kantmaður hefur verið undir smásjá Liverpool í þó nokkurn tíma. Félagið var ekki reiðubúið að greiða 100 milljón punda verðmiðan sem settur var á hann en PSG og Man Utd hafa jafnframt áhuga á honum og vill hann ólmur fara til Frakklands.

Canon

Mynd: EPA

<b>Djed Spence (England, Tottenham):</b> Grímuklæddi Spence endaði mótið frábærlega með sterkri innkomu gegn Noregi og fínasta leik gegn heimsmeisturum Argentínu. Inter er með bakvörðinn í sigtinu en Liverpool og Everton hafa sömuleiðis áhuga á honum.

Djed Spence (England, Tottenham): Grímuklæddi Spence endaði mótið frábærlega með sterkri innkomu gegn Noregi og fínasta leik gegn heimsmeisturum Argentínu. Inter er með bakvörðinn í sigtinu en Liverpool og Everton hafa sömuleiðis áhuga á honum.

Canon

Mynd: EPA

<b>John Stones (England, án félags):</b> Stones varð fyrsti leikmaður í sögu Englands til að spila með liðinu á HM án þess að vera samningsbundinn félagi. Eftir farsælan tíma hjá City var ekki framlengt við hann og er hann skotmark Juventus og Inter. Þá hefur Leeds jafnframt áhuga á að fá hann en hann er fæddur og uppalinn í Jórðvíkurskíri og fór í gegnum akademíu Barnsley.

John Stones (England, án félags): Stones varð fyrsti leikmaður í sögu Englands til að spila með liðinu á HM án þess að vera samningsbundinn félagi. Eftir farsælan tíma hjá City var ekki framlengt við hann og er hann skotmark Juventus og Inter. Þá hefur Leeds jafnframt áhuga á að fá hann en hann er fæddur og uppalinn í Jórðvíkurskíri og fór í gegnum akademíu Barnsley.

Canon

Mynd: EPA

<b>Antonee Robinson (Bandaríkin, Fulham):</b> Var lykilmaður í spræku liði Bandaríkjamanna. Hefur staðið sig vel með Fulham síðustu ár og hefur Man Utd sýnt bakverðinum áhuga.

Antonee Robinson (Bandaríkin, Fulham): Var lykilmaður í spræku liði Bandaríkjamanna. Hefur staðið sig vel með Fulham síðustu ár og hefur Man Utd sýnt bakverðinum áhuga.

Canon

Mynd: EPA

<b>Julian Alvarez (Argentína, Atletico Madrid):</b> Lykilmaður í liði Argentínu sem mætir Spáni í úrslitaleiknum á sunnudag. Hefur blómstrað hjá Atletico síðustu tvö ár. Félagið leggur allt kapp á að halda honum en Alvarez er eitt helsta skotmark Englandsmeistara Arsenal.

Julian Alvarez (Argentína, Atletico Madrid): Lykilmaður í liði Argentínu sem mætir Spáni í úrslitaleiknum á sunnudag. Hefur blómstrað hjá Atletico síðustu tvö ár. Félagið leggur allt kapp á að halda honum en Alvarez er eitt helsta skotmark Englandsmeistara Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

<b>Mikel Oyarzabal (Spánn, Real Sociedad):</b> Líður vel hjá uppeldisklúbbnum þar sem hann er aðalmaðurinn. Greint hefur verið frá því að hann sé með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum kleift að fara fyrir 65 milljónir punda. Juventus Arsenal og Barcelona eru öll með þann spænska á blaði.

Mikel Oyarzabal (Spánn, Real Sociedad): Líður vel hjá uppeldisklúbbnum þar sem hann er aðalmaðurinn. Greint hefur verið frá því að hann sé með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum kleift að fara fyrir 65 milljónir punda. Juventus Arsenal og Barcelona eru öll með þann spænska á blaði.

Canon

Mynd: EPA

<b>Zion Suzuki (Parma, Japan):</b> Var frábær í marki Japans á mótinu sem duttu úr leik gegn Brasilíu í 32-liða úrslitum. Newcastle og Leeds eru bæði með hann á óskalistanum.

Zion Suzuki (Parma, Japan): Var frábær í marki Japans á mótinu sem duttu úr leik gegn Brasilíu í 32-liða úrslitum. Newcastle og Leeds eru bæði með hann á óskalistanum.

Canon

Mynd: Matthías Már

<b>Bradley Barcola (Frakkland, PSG):</b> Stór hluti af ógnvænlegri sóknarlínu Frakka, byrjaði fjóra leiki og skoraði tvö mörk á mótinu. Hefur verið orðaður við Börsunga, Arsenal og Liverpool.

Bradley Barcola (Frakkland, PSG): Stór hluti af ógnvænlegri sóknarlínu Frakka, byrjaði fjóra leiki og skoraði tvö mörk á mótinu. Hefur verið orðaður við Börsunga, Arsenal og Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.