Bowen tekur slaginn með West Ham í Championship deildinni

Áfram þrátt fyrir fallið.

Mynd: EPA

Áfram þrátt fyrir fallið.

Mynd: EPA
Jarrod Bowen, fyrirliði West Ham, mun leika áfram með liðinu á komandi tímabil þrátt fyrir fall liðsins í Championship deildina.
The Athletic greinir frá því að Bowen hafi skrifað undir endurskoðaðan samning og skuldbundið sig félaginu út næsta tímabil í hið minnsta. Samningur hans rennur út sumarið 2030.

West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili og mun spila í Championship deildinni á þeirri næstu í fyrsta sinn í fjórtán ár.
Bowen hefur verið eftirsóttur en West Ham hefur lagt allt kapp á að halda fyrirliðanum.
Mateus Fernandes var seldur frá félaginu til Tottenham eftir fallið og er búist við að Crysencio Summerville muni sömuleiðis yfirgefa Hamrana.