Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 30. september 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Leverkusen áfram í viðræðum um kaup á Kolasinac
Þýska félagið Bayer Leverkusen er ennþá í viðræðum við Arsenal um kaup á vinstri bakverðinum Sead Kolasinac.

Kolasinac er á eftir Kieran Tierney og Ainsley Maitland-Niles í röðinni hjá Arsenal.

Hinn 27 ára gamli Kolasinac spilaði áður með Schalke og hann hefur hug á að fara aftur til Þýskalands af fjölskylduástæðum.

Kolasinac á 107 leiki að baki með Arsenal en hann var ónotaður varamaður í 3-1 tapinu gegn Liverpool í fyrrakvöld.
Athugasemdir
banner