Fotbolti.net
30.09.23 - 11:40
Aksentije Milisic

Nokkrir mikilvægir leikmenn fjarri góðu gamni hjá Palace gegn Man Utd

Edouard verður ekki með í dag.

Edouard verður ekki með í dag.

Canon

Mynd: EPA

Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, tjáði sig um meiðsli í leikmannahópi sínum fyrir leikinn gegn Manchester United í dag en liðin eru að mætast í annað skiptið í þessari viku.

United vann Palace með þremur mörkum gegn engu í enska deildabikarnum í miðri viku en í þeim leik meiddist Dean Henderson, fyrrverandi markvörður Man Utd og núverandi markvörður Palace.

Henderson á við vöðvameiðsli að stríða en Sam Johnstone fór í markið eftir einungis nítján mínútna leik. Þá er sóknarmaðurinn Odsonne Edouard einnig meiddur en hann hafði farið frábærlega af stað á þessari leiktíð. Menn á borð við Jefferson Lerma, Michael Olise og Matheus Franca eru allir meiddir og verða ekki með á Old Trafford á eftir.

Man Utd er einnig í meiðslavandræðum en Lisandro Martinez, Aaron Wan-Bissaka, Luke Shaw, Tyrell Malacia og Sergio Reguilon er allir frá vegna meiðsla. Raphael Varane er hins vegar orðinn heill heilsu en hann spilaði síðasta leik gegn Palace rétt eins og Mason Mount.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal1+33
2Brentford1+33
3Everton1+23
4Hull City1+23
5Ipswich Town1+13
6Leeds1+13
7Aston Villa000
8Chelsea000
9Fulham000
10Liverpool000
11Man City000
12Newcastle000
13Bournemouth000
14Brighton000
15Sunderland1-10
16Nott. Forest1-10
17Man Utd1-20
18West Ham38-1939
18Crystal Palace1-20
19Burnley38-3722
19Tottenham1-30
20Wolves38-4120
20Coventry1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.