Fotbolti.net
UTAN VALLAR: Víkingur með betri efnahagsreikning en Borac

23.08.26

UTAN VALLAR: Víkingur með betri efnahagsreikning en Borac

SÆVAR ÞÓR SVEINSSON

Um þessar mundir er Víkingur statt í umspili gegn bosníska meisturunum FK Borac Banja Luka. Fyrri leikur liðanna fór fram síðasta fimmtudag þar sem Borac sigraði með þremur mörkum gegn einu. Seinni leikur liðanna fer fram í Bosníu á fimmtudaginn kemur og er Víkingur því með bakið upp við vegginn fyrir þann leik. Með því að komast inn í Sambandsdeildina gæti heildarverðlaunafé Víkings fyrir sína þátttöku jafnast á við heildarveltu félagsins árið 2025. Til þess að það raungerist þarf liðið þó að sigra seinni leikinn við Borac. Oft getur reynst erfitt að meta styrkleika erlendra liða, sér í lagi þegar þau koma frá deildum sem eru okkur Íslendingum lítt þekkt. Í þessari grein verða ársreikningar liðanna bornir saman til þess að reyna mála upp einhverja mynd af því hvort Víkingur eigi möguleika á fimmtudaginn.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.