22.08.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild: Bráðnauðsynlegur sigur hjá KFG

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

KFG 4 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Gísli Snær Weywadt Gíslason ('35 )
2-0 Arnar Ingi Valgeirsson ('69 )
3-0 Ísak Aron Víðisson ('83 )
4-0 Franz Bergmann Heimisson ('90 )
1-0 Gísli Snær Weywadt Gíslason ('35 )
2-0 Arnar Ingi Valgeirsson ('69 )
3-0 Ísak Aron Víðisson ('83 )
4-0 Franz Bergmann Heimisson ('90 )
KFG vann bráðnauðsynlegan sigur á Kormáki/Hvöt í 2. deild í dag.
Gísli Snær Weywadt Gíslason sá til þess að KFG var með forystuna í hálfleik þegar hann skoraði eftir rúmlega hálftíma leik.
Arnar Ingi Valgeirsson bætti öðru markinu við, Ísak Aron Víðisson skoraði síðan þriðja markið áður en Franz Bergmann Heimisson innsiglaði sigurinn undir lokin.
KFG er í næst neðsta sæti með 19 stig, jafn mörg stig og Þróttur Vogum, sem er í 10. sæti með leik til góða. Kormákur/Hvöt er í 6. sæti með 24 stig. Það eru aðeins þrjár umferðir eftir af deildinni.