Fotbolti.net
22.08.26 - 20:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

De Zerbi: Líkamlegt ástand leikmanna ekki gott

De Zerbi: Líkamlegt ástand leikmanna ekki gott
Canon

Mynd: EPA

Tottenham steinlá 3-0 gegn Brentford í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Roberto de Zrebi, stjóri Tottenham, ræddi við BBC eftir leikinn.
England: Brentford pakkaði Tottenham saman
TENGT EFNI

England: Brentford pakkaði Tottenham saman

„Lélegur leikur. Einvígin gerðu gæfumuninn. Við börðumst ekki á réttan hátt. Það er kannski hrós á þá því það er besti þáttur Brentford liðsins," sagði De Zerbi.

„Líkamlegt ástand leikmanna var ekki á réttu stigi því margir komu seint eftir HM og það voru margir nýir leikmenn í hópnum. Við verðum að fara yfir þennan leik því við getum ekki spilað svona í svona leik."

„Marcos Senesi, Jan Paul van Hecke og Sandro Tonali eru ekki í besta standinu. Við vissum það fyrir leikinn. Við verðum að bæta það og margt annað, eins og skipulag og pressu," sagði De Zerbi að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.