22.08.26 - 19:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Borja reiður: Þekkti ekki liðið mitt
Auglýsing

Mynd: Völsungur

Mynd: Völsungur

Völsungur tapaði gegn Njarðvík í Lengjudeildinni í dag. Fótbolti.net ræddi við Borja Iglesias, þjálfara Völsungs, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Njarðvík 4 - 0 Völsungur
„Þetta eru mjög slæm úrslit fyrir okkur. Við erum að leggja hart að okkur, unnum fjóra af síðustu fimm leikjum en ég þekkti ekki liðið mitt í dag. Ég er mjög reiður því ég þekkti ekki liðið mitt," sagði Borja.
„Ég veit að veðrið hafði mikið að segja en við erum að norðan. VIð þurfum að halda áfram og bíta frá okkur."
Völsungur er í 11. sæti, stigi frá öruggu sæti, þegar tvær umferðir eru eftir.
„Næsti leikur á móti ÍR er mjög mikilvægur leikur. Allir þurfa að stíga upp. Liðið spilaði illa í dag. Við þrufum að jafna okkur og snúa aftur," sagði Borja.