Fotbolti.net
22.08.26 - 18:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeild kvenna: Sara Björk með tvennu - KR tapaði

HK skoraði átta

Lengjudeild kvenna: Sara Björk með tvennu - KR tapaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Haukar eru komnir upp í 2. sæti Lengjudeildar kvenna eftir öruggan sigur á Völsungi í dag.

Lilja Þórdís Guðjónsdóttir setti tóninn með tveimur mörkum snemma leiks. Sara Björk Gunnarsdóttir bætti síðan þriðja markinu við eftir stundafjórðung.
Sara skoraði síðan sitt annað mark og fjórða mark Hauka úr vítaspyrnu strax í upphafi seinni hálfleiks.

Það var síðan Halla Þórdís Svansdóttir sem innsiglaði sigur liðsins áður en Maria Fernanda Contreras Munoz skoraði sárabótamark fyrir Völsung.

Alexis Simone Wright var hetja FHL þegar hún skoraði bæði mörk liðsins í sterkum sigri á KR. Þá vann Selfoss sigur á ÍA.

Cally Queen Togiai og Karlotta Björk Andradóttir skoruðu þrennur og Henríetta Ágústsdóttir og Valgerður Lilja Arnarsdóttir sitt markið hvor í stórsigri HK á Tindastóli.

Völsungur 1 - 5 Haukar
0-1 Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('1 )
0-2 Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('13 )
0-3 Sara Björk Gunnarsdóttir ('15 )
0-4 Sara Björk Gunnarsdóttir ('47 , víti)
0-5 Halla Þórdís Svansdóttir ('71 )
1-5 Maria Fernanda Contreras Munoz ('78 )

Tindastóll 0 - 8 HK
0-1 Cally Queen Togiai ('30 )
0-2 Henríetta Ágústsdóttir ('33 )
0-3 Karlotta Björk Andradóttir ('36 )
0-4 Cally Queen Togiai ('41 )
0-5 Cally Queen Togiai ('46 )
0-6 Karlotta Björk Andradóttir ('66 )
0-7 Valgerður Lilja Arnarsdóttir ('68 )
0-8 Karlotta Björk Andradóttir ('86 )

Selfoss 1 - 0 ÍA
1-0 Stevie Madonna Reynolds ('25 )

KR 0 - 2 FHL
0-1 Alexis Simone Wright ('10 )
0-2 Alexis Simone Wright ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta15+2335
2Haukar15+427
3KR15+1526
4HK15+1326
5Selfoss15+826
6ÍA15+621
7FHL15+221
8Keflavík15+417
9Völsungur15-912
10Tindastóll15-663
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.