Fotbolti.net
22.08.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Davíð Smári í skýjunum: Ekki hægt að spila meiri gæðafótbolta miðað við aðstæður

Auglýsing
Davíð Smári í skýjunum: Ekki hægt að spila meiri gæðafótbolta miðað við aðstæður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
NJarðvík lagði Völsung af velli í Lengjudeildinni í dag við erfiðar aðstæður í Njarðvík. Fótbolti.net ræddi við Davíð Smára Lamude, þjálfara Njarðvíkur, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Njarðvík 4 - 0 Völsungur
„Mér fannst við spila þennan leik eins vel og hægt var miðað við aðstæður. Ég er smá svekktur með færanýtinguna og fannst við eiga að fá víti í leiknum. Mér fannst við eiga mögulega að fá að spila einum fleiri," sagði Davíð Smári.

Davíð Smári var ánægður með svarið sem leikmenn gáfu eftir tap gegn ÍR í síðustu umferð.

„Ég er ótrúlega ánægður með andann í liðinu. Við þurftum heldur betur að svara fyrir afskaplega dapra frammistöðu á móti ÍR. Mér fannst við koma með gríðarlegan kraft í þennan leik og fannst við gera allt sem hægt var til að vinna leikinn. Unnum baráttuna og náðum að sýna gæði á köflum sem var mjög erfitt miðað við aðstæður," sagði Davíð Smári.

„Það hjálpaði líka að eiinn stjórnarmeðlimur Völsungs náði að aðeins að kveikja í mínum mönnum með skilaboðasendingum."

„Í draumaheimi hefðum við náð að spila við aðeins betri aðstæður. Við hefðum getað náð betri leik gæðalega. Mér fannst í alvörunni í raun og veru ekki hægt að spila meiri gæðafótbolta miðað við aðstæður. Völlurinn rennandi blautur og eins og mýri. Það er ótrúlegt hvað við náðum fínum spilköflum inn á milli miðað við aðstæður."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.