Fotbolti.net
23.08.26 - 10:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Alvarez opinn fyrir Arsenal - Man Utd á eftir bakverði Barcelona

Julian Alvarez.

Julian Alvarez.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Þá er komið að slúðrinu á þessum ágæta sunnudegi. BBC tók saman allt það helsta sem er í gangi núna þegar stutt er í að félagaskiptaglugginn loki.
Argentínski framherjinn Julián Álvarez (26) er opinn fyrir því að ganga til liðs við Arsenal. Hann hefur hingað til helst viljað fara til Barcelona en samband hans við Atlético Madrid er sagt vera farið að versna. (Standard)

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, og Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, hafa verið í reglulegu sambandi við Álvarez í sumar. Argentínumaðurinn vill enn helst fara til Barcelona en lítur nú á Arsenal sem góðan varakost. (AS)

Tottenham er bjartsýnt á að ganga frá kaupum á Omar Marmoush (27), framherja Manchester City, í byrjun næstu viku. (Fabrizio Romano)

Ollie Watkins (30) hefur sagt Aston Villa að hann vilji yfirgefa félagið. Áhugi er frá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. (GiveMeSport)

Alejandro Balde (22) hefur ákveðið að yfirgefa Barcelona og Manchester United hefur haft samband vegna mögulegra kaupa. (Metro)

Önnur heimild segir hins vegar að Balde (22) sé staðráðinn í að berjast fyrir sæti sínu hjá spænsku meisturunum og vilji helst vera áfram. (Mundo Deportivo)

Real Madrid ætlar ekki að leyfa Liverpool að kaupa brasilíska framherjann Endrick (20). Félagið hefur þegar látið Gonzalo Garcia (22) fara til Fulham í sumar og vill því ekki missa annan framherja. (Football Insider)

Chelsea hefur hafnað lánstilboði frá Roma í enska U21-landsliðsmanninn Jamie Bynoe-Gittens (22). (Talksport)

Tottenham hefur sett Pape Matar Sarr (23) á sölulista og miðjumaðurinn er sagður vera á leið til Galatasaray. (Sacha Tavolieri)

Besiktas hefur lagt fram tilboð í Joe Willock (27) hjá Newcastle. Enski miðjumaðurinn er sagður vera helsta skotmark tyrkneska félagsins í félagaskiptaglugganum. (Fabrizio Romano)

Liverpool hefur fengið byr undir báða vængi hvað varðar áhuga sinn á Bradley Barcola (23) og Ibrahim Mbaye (18) hjá Paris Saint-Germain. Hvorugur leikmaðurinn var í leikmannahópi PSG gegn Rennes í Ligue 1 á sunnudaginn. (Standard)

Liverpool hefur ekki enn tekið ákvörðun um framtíð Jayden Danns (20). Framherjinn er orðinn heill heilsu á ný en Liverpool hefur ekki ákveðið hvort hann verði lánaður út. (Liverpool Echo)
Marmoush virðist vera á leið til Spurs.

Marmoush virðist vera á leið til Spurs.

Canon

Mynd: EPA

Alejandro Balde er orðaður við Manchester United.

Alejandro Balde er orðaður við Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Ollie Watkins gæti verið á leið til Sádi-Arabíu.

Ollie Watkins gæti verið á leið til Sádi-Arabíu.

Canon

Mynd: EPA

Bradley Barcola.

Bradley Barcola.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.