Fotbolti.net
22.08.26 - 21:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Skoraði dramatískt sigurmark í sínum fyrsta leik fyrir Real Madrid

Spánn: Skoraði dramatískt sigurmark í sínum fyrsta leik fyrir Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Carlos Espi skoraði dramatískt sigurmark í sínum fyrsta keppnisleik fyrir Real Madrid gegn Espanyol í kvöld.

Þetta var fyrsti leikur Real Madrid á tímabilinu en Espanyol var að spila sinn annan leik.
Jude Bellingham kom Real Madrid yfir snemma leiks. Hann skoraði með skalla eftir aukaspyrnu frá Arda Guler. Alex Calatrava jafnaði metin eftir góða sókn eftir hálftíma leik.

Real Madrid var með öll völd á vellinum í seinni hálfleik en það var ekki fyrr en á 90. mínútu sem Carlos Espi, skoraði og tryggði Real Madrid sigurinn.

Espi er 21 árs framherji en hann gekk til liðs við félagið frá Levante í sumar. Hann kom inn á sem varamaður ásamt Yan Diomande og Marc Cucurella. Ibrahima Konate og Bernardo Silva voru í byrjunarliðinu í sínum fyrsta leik.

Þá vann Sevilla góðan sigur á Athletic Bilbao og Valencia og Celta Vigo gerðu markalaust jafntefli.

Athletic 1 - 3 Sevilla
0-1 Oso ('15 )
0-2 Chidera Ejuke ('50 )
0-3 Isaac Romero Bernal ('57 )
1-3 Aitor Paredes ('70 )
Rautt spjald: Yuri Berchiche, Athletic ('11)

Espanyol 1 - 2 Real Madrid
0-1 Jude Bellingham ('9 )
1-1 Alex Calatrava ('30 )
1-2 Carlos Espi ('90 )

Valencia 0 - 0 Celta

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona13+3636
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid13+1631
4Betis13+527
5Real Sociedad13022
6Sevilla13-219
7Racing Santander13-1217
8Athletic12+316
9Alaves13016
10Villarreal13+115
11Espanyol13015
12Deportivo13-115
13Osasuna13-1015
14Celta13-113
15Levante13-512
16Vallecano12-712
17Valencia13-1112
18Getafe13-1312
19Elche13-611
20Malaga13-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.