Fotbolti.net
22.08.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mateta í stappi við Palace út af samningnum

Mateta í stappi við Palace út af samningnum
Canon

Mynd: EPA

Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, heldur því fram að samningur hans við Crystal Palace sé ógildur og hann hefur vísað málinu til FIFA. BBC greinir frá þessu.
Mateta, sem var í byrjunarliði Crystal Palace í 2-0 tapi gegn Everton í dag, gekk til liðs við félagið á lánssamningi frá Mainz árið 2021. Hann skrifaði síðan í kjölfarið undir fjögurra og hálfs árs samning með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.

Palace virkjaði möguleikann árið 2024 sem þýðir að hann er samningsbundinn félaginu út núverandi tímabil.

Hann krefst þess að síðasta árið verði óglit en talið er að málið hafi verið tekið fyrir af óháðum dómstóli samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar. FIFA segir að það sé ekki innan þeirra valdsviðs að fella samninginn úr gildi.

Mateta ýtti á að yfirgefa Palace í janúar á þessu ári og var nálægt því að ganga til liðs við AC Milan. Það gekk þó ekki eftir vegna vandamála með hné Mateta.

Mateta hefur skorað 62 mörk í 202 leikjum fyrir Crystal Palace.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.