Fotbolti.net
22.08.26 - 19:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Ítalía: Inter hóf titilvörnina af krafti

Ítalía: Inter hóf titilvörnina af krafti
Canon

Mynd: EPA

Inter stóð uppi sem sigurvegari í ítölsku deildinni á síðustu leiktíð. Liðið hóf leik á nýrri leiktíð í dag þegar liðið fékk nýliða Monza í heimsókn.
Inter nældi í John Stones, Djed Spence og Curtis Jones gengu til liðs við félagið í sumar. Spence og Jones heilsuðu upp á stuðningsmennina en voru ekki í hópnum.

Stones byrjaði á bekknum og kom inn á þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.

Hakan Calhanoglu kom Inter yfir snemma leiks með þrumufleyg. Gustavo Varela jafnaði metin og 1-1 var staðan í hálfleik.

Inter setti í annan gír í seinni hálfleik. Piotr Zilenski kom þeim aftur yfir, Francesco Pio Esposito bætti síðan þriðja markinu við með laglegri hælspyrnu.

Það var síðan Yann Bisseck sem innsiglaði sigurinn. Þá gerðu Udinese og Como jafntefli.

Inter 4 - 1 Monza
1-0 Hakan Calhanoglu ('6 )
1-1 Gustavo Varela ('29 )
2-1 Piotr Zielinski ('48 )
3-1 Pio Esposito ('55 )
4-1 Yann Bisseck ('63 )

Udinese 1 - 1 Como
1-0 Hassane Kamara ('29 )
1-1 Anastasios Douvikas ('54 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.