Fotbolti.net
22.08.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fer Wijnaldum til Bandaríkjanna?

Fer Wijnaldum til Bandaríkjanna?
Canon

Mynd: EPA

Hollenski miðjumaðurinn Georginio Wijnaldum hefur verið í viðræðum við bandaríska félagið Real Salt Lake. The Athletic greinir frá þessu.
Wijnaldum er mjög hrifinn af félaginu og er opinn fyrir því að fara í bandarísku MLS deildina en það er ekkert samkomulag í höfn.

Wijnaldum er 35 ára en hann er án félags eftir að hann yfirgaf sádi arabíska félagið Al-Ettifaq í sumar. Hann var hjá félaginu í tæp þrjú ár.

Wijnaldum er þekktastur fyrir tímann sinn hjá Liverpool. Hann spilaði 237 leiki fyrir félagið og var lykilmaður í liðinu sem vann úrvalsdeildina og Meistaradeildina.

Hann var hjá PSG og Roma áður en hann gekk til liðs við Al-Ettifaq árið 2023.

Real Salt Lake ætlar að styrkja sig fyrir gluggalok 2. september en félagið seldi Zavier Gozo til Crystal Palace fyrr í þessum mánuði. Liðið er í 8. sæti Vesturdeildarinnar með 28 stig eftir 19 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.