Fotbolti.net
22.08.26 - 14:50
Brynjar Ingi Erluson

Skotmark Man Utd vill fara frá Barcelona

Skotmark Man Utd vill fara frá Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Spænski vinstri bakvörðurinn Alejandro Balde hefur gefið til kynna að hann vilji fara frá Spánarmeisturum Barcelona fyrir lok gluggans, en þetta segir blaðamaðurinn Gerard Romero.
Romero er einn áreiðanlegasti blaðamaðurinn þegar kemur að fréttum af Barcelona.

Hann segir portúgalska umboðsmanninn Jorge Mendes kanna markaðinn og leita að bestu lausninni fyrir Balde, sem hefur lengi verið á óskalista Manchester United.

United þarf að styrkja vinstri bakvarðarstöðuna. Félagið hefur sett mikið traust á Luke Shaw en Englendingurinn þarf meiri samkeppni.

Shaw átti slakan leik í 2-0 tapinu gegn nýliðum Hull í dag og því kæmi ekki á óvart ef United reyndi að fá Balde áður en glugginn lokar.

Balde er 22 ára gamall og uppalinn hjá Barcelona. Hann lék 42 leiki í öllum keppnum á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.