Fotbolti.net
22.08.26 - 20:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýski Ofurbikarinn: Bayern vann tíu leikmenn Dortmund

Þýski Ofurbikarinn: Bayern vann tíu leikmenn Dortmund
Canon

Mynd: EPA

Dortmund 1-2 Bayern
1-0 Nathaniel Brown ('28 )
2-0 Michael Olise ('45 )
2-1 Fabio Silva ('75 )
Rautt spjald: Ramy Bensebaini, Dortmund, ('90 )
Bayern er þýskur Ofurbikarmeistari eftir sigur á Dortmund í kvöld. Bayern vann deild og bikar á síðustu leiktíð en liðið mætti Dortmund þar sem þeir gulu höfnuðu í 2. sæti í deildinni.

Bayern var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik en Manuel Neuer í markinu þurfti ekki að verja neinn einasta bolta.

Nathaniel Brown spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir Bayern í kvöld eftir komuna frá Frankfurt í sumar. Hann kom liðinu yfir eftir hálftíma leik eftir sendingu frá Michael Olise.

Olise bætti síðan öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks. Dortmund kom boltanum í netið rétt fyrir annað mark Bayern en rangstaða dæmd.

Fabio Silva kom inn á hjá Dortmund og minnkaði muninn þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Dortmund varð síðan manni færri stuttu síðar þegar Ramy Bensebaini fékk rautt spjald fyrir brot á Ismael Saibari.

Fleiri mörk urðu ekki skoruð og Bayern vann Ofurbikarinn í tólfta sinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.