Fotbolti.net
30.09.26 - 21:51
Ívan Guðjón Baldursson

Rui Pinto er með fleiri gögn um Manchester City

Rui Pinto er með fleiri gögn um Manchester City
Canon

Mynd: Spiegel

Portúgalinn Rui Pinto er frægur fyrir að hafa stofnað Football Leaks vefsíðuna fyrir rúmum áratugi síðan og lekið þangað miklu magni trúnaðargagna úr fótboltaheiminum.
Maðurinn sem kom Man City í klandur
TENGT EFNI

Maðurinn sem kom Man City í klandur

Þessi gögn hafa komið ýmsum félagsliðum og einstaklingum í klandur og eru meðal annars grunnurinn á bak við rannsóknir sem hafa verið gerðar á meintum fjármálabrotum Manchester City í gegnum árin.

Lögmaður Rui Pinto segir að enn sé ekki búið að leka öllum upplýsingum til almennings. Hann segir Football Leaks vera með fleiri gögn sem sýna fram á enn frekari brot Manchester City og fleiri aðila á hinum ýmsum reglum fótboltaheimsins. Þar er einnig að finna brot sem gætu varðað við lög.

Úrvalsdeildarfélögin vilja að Man City sé refsað sem fyrst
TENGT EFNI

Úrvalsdeildarfélögin vilja að Man City sé refsað sem fyrst



Rui Pinto sagði sjálfur fyrir tveimur árum síðan, þegar hann afhenti viðkvæm gögn til yfirvalda í Þýskalandi og Frakklandi, að hann ætti fleiri gögn varðandi meint brot Manchester City.

Rui Pinto var dæmdur brotlegur í fimm liðum og fékk fyrir það fjögurra ára skilorðsbundinn dóm og fór í vitnavernd. Hann vann svo stórt mál fyrir portúgölskum dómstólum fyrr á þessu ári og má búast við að hann opinberi fleiri trúnaðargögn úr fótboltaheiminum þegar öllum málaferlum er lokið.
Rui Pinto er með fleiri gögn um Manchester City
Canon

Mynd: EPA

Rui Pinto er með fleiri gögn um Manchester City
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.