30.09.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Úrvalsdeildarfélögin vilja að Man City sé refsað sem fyrst

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Stjórnendur enskra úrvalsdeildarfélaga hafa verið að ræða saman um lagalega möguleika sína eftir að Manchester City var dæmt sekt í 114 ákæruliðum af 115 í ákæru frá enska fótboltasambandinu.

TENGT EFNI
Hvaða félög fá titlana ef City verður svipt þeim?
Man City heldur fram sakleysi sínu og ætlar að áfrýja málinu, en gögnin tala sínu máli og á félagið yfir höfði sér mjög alvarlegar refsingar og jafnvel lögsóknir.
Ensku úrvalsdeildarfélögin vilja sjá City vera refsað sem fyrst, helst á yfirstandandi keppnistímabili. Mögulegt er að félagið verði dæmt niður um deild eða deildir og þurfi að borga himinhá sektargjöld bæði til ensku úrvalsdeildarinnar og keppinauta sinna í deildinni - félagsliða sem töpuðu efnahagslega á velgengni City.
Félagið er sakað um ýmsa hluti, meðal annars að hafa logið til um rúmlega 900 milljónir punda sem komu til félagsins í auglýsinga- og styrktargreiðslur á árunum 2009 til 2018. Eigendur Man City borguðu reikningana fyrir styrktaraðila sína og fóru þannig framhjá fjármálareglum úrvalsdeildarinnar. Þeir dældu peningum inn í félagið með ólögmætum hætti og lugu svo til um það og hylmdu yfir. Þá á eftir að rannsaka hegðun félagsins á árunum eftir 2018.
Man City ætlar að áfrýja og eru úrvalsdeildarfélögin smeyk um að áfrýjunarferlið muni taka alltof langan tíma. Þess vegna heimta félögin að málið verði leyst á yfirstandandi keppnistímabili.
Auk City hefur flugfélagið Etihad Airways, helsti styrktaraðili Man City í eigendatíð Sheikh Mansour, lýst yfir furðun sinni á niðurstöðu óháðrar rannsóknarnefndar sem fór yfir málið og hótað að lögsækja ensku úrvalsdeildina.