30.11.25 - 10:36
Ívan Guðjón Baldursson
Messi búinn að bæta stoðsendingamet Puskás

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi er opinberlega orðinn stoðsendingahæsti leikmaður fótboltasögunnar eftir að hann lagði upp í stórsigri Inter í úrslitakeppni MLS deildarinnar í nótt.
Messi lagði upp í stórsigri gegn New York City í undanúrslitum í nótt og var það hans 405. stoðsending í keppnisleik með meistaraflokki.
Hann er þar með orðinn stoðsendingahærri heldur en ungverska goðsögnin Ferenc Puskás, sem var atvinnumaður í 23 ár með Budapest Honvéd og Real Madrid.
Það er langt síðan Messi tók framúr brasilísku goðsögninni Pelé sem gaf 369 stoðsendingar á sínum ótrúlega ferli.
Gamalt stoðsendingamet Puskás fékk að standa í 59 ár áður en Messi bætti það.