Fotbolti.net
31.01.23 - 21:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Hamed Traore til Bournemouth (Staðfest) - Stór verðmiði

Traore fagnar marki með Sassuolo.

Traore fagnar marki með Sassuolo.

Canon

Mynd: EPA

Bournemouth er að gera allt sem félagið getur á leikmannamarkaðnum til þess að eiga möguleika á því að halda sér uppi í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrr í kvöld keypti félagið úkraínska varnarmanninn Illia Zabarnyi frá Dynamo Kiev.
Núna er kantmaðurinn Hamed Traore mættur til félagsins frá Sassuolo á Ítalíu.

Hann er 22 ára gamall kantmaður sem kemur fyrst um sinn á láni en svo þarf félagið að kaupa hann fyrir 30 milljónir evra. Hann verður þá dýrasti leikmaður í sögu Bournemouth ásamt Jefferson Lerma.

Bournemouth er sem stendur í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.