Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 31. janúar 2023 10:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Shelvey í læknisskoðun hjá Forest
Mynd: EPA
Jonjo Shelvey er mættur í læknisskoðun hjá Nottingham Forest. Ef sú skoðun fer vel eru allar líkur á því að miðjumaðurinn gangi í raðir félagsins.

Shelvey er samningsbundinn Newcastle fram á sumarið en fjallað hefur verið um að Newcastle sé líklegt til að hleypa honum í burtu á frjálsri sölu.

Shelvey gæti æft með nýjum liðsfélögum seinna í dag. Hann hefur glímt við meiðsli að undanförnu en er að koma til baka.

Hann er þrítugur og hefur verið hjá Newcastle í sjö ár. Áður lék hann með Charlton, Liverpool, Blackpool og Swansea.
Athugasemdir
banner
banner
banner