Fotbolti.net
31.03.13 - 16:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Upptaka - Jón Daði: Ekki vanur svona stóru sviði

Auglýsing
Jón Daði Böðvarsson.

Jón Daði Böðvarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson hefur verið að gera góða hluti. Þessi skemmtilegi leikmaður lék sinn fyrsta deildarleik með Viking Stafangri í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar og lék skínandi vel í sigri gegn Noregsmeisturum Molde.

Jón Daði var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær en á morgun mun Viking leika við Íslendingaliðið Sarpsborg.
„Maður getur ekki beðið, það er spenna fyrir því,\" segir Jón Daði sem er hæstánægður með fyrsta leik.

„Það var æðislegur sigur og hrikalega gott að ná þremur stigum úr þeim leik. Sérstaklega þar sem við eigum tvo útileiki næst.\"

„Þetta var tilbreyting. Maður er ekki vanur svona stóru sviði og það var æðislega gaman. Það tók mig smá tíma að komast inn í leikinn, svona fyrsta korterið. Eftir það naut maður sín í botn.\"

Jón Daði fór beint í byrjunarliðið en segist hafa búist við því.

„Það er annar leikmaður sem hefur verið að spila í minni stöðu sem hefur verið meiddur. Maður vissi því nokkurn veginn að maður myndi byrja leikinn.\"

„Markmiðið hjá Viking er að ná Evrópusæti, enda í einu af þremur efstu sætunum. Við ætlum okkur að ná því. Þetta er stór klúbbur og miklar væntingar. Það er ákveðin pressa fyrir hvern leik.\"

Gerist varla skemmtilegra en að vinna landsleiki
Jón Daði skoraði svo stórglæsilegt mark þegar íslenska U21-landsliðið vann 2-1 útisigur á Hvíta-Rússlandi í nýrri undankeppni.

„Það var djöfulli gaman. Það gerist varla skemmtilegra en að vinna landsleik. Þetta var frábær sigur og vonandi að við náum að halda þessu áfram. Þetta er erfiður útivöllur og ekkert djók að koma þarna og sækja þrjú stig,\" segir Jón Daði.

„Ég hef haft það á tilfinningunni að fólk hafi ekki mikla trú á þessari kynslóð sem er núna. Við vissum allir af því og vorum ákveðnir í að sýna það að við erum góðir leikmenn sem erum í þessu liði.\"

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.