Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 31. mars 2020 09:06
Elvar Geir Magnússon
Mun Man Utd snúa sér að Maddison?
Powerade
James Maddison, leikmaður Leicester.
James Maddison, leikmaður Leicester.
Mynd: Getty Images
Brasilímaðurinn Willian.
Brasilímaðurinn Willian.
Mynd: Getty Images
Maddison, Sancho, Coutinho, Willian og fleiri í slúðurpakka dagsins. BBC tók saman.

Manchester United gæti beint athygli sinni að James Maddison (23) hjá Leicester City frekar en Jack Grealish (24) eftir að fyrirliði Aston Villa skapaði enn einu sinni vandræði utan vallar. (Star)

Borussia Dortmund segir að Jadon Sancho (20) muni kosta að minnsta kosti 110 milljónir punda en Manchester United, Chelsea og Liverpool hafa öll áhuga. (Teamtalk)

Liverpool hefur ekki áhuga á því að fá Brasilíumanninn Philippe Coutinho aftur en hann er á láni hjá Bayern München frá Barcelona. (Mirror)

Manchester United er líklegast til að fá hinn 27 ára Coutinho. (Express)

Real Madrid, Barcelona, Sevilla og Ajax hafa öll áhuga á að fá Igor Gomes (21), miðjumann Sao Paulo í Brasilíu. Hann er brasilískur U20 landsliðsmaður. (AS)

Willian (31), miðjumaður Chelsea, hefur áhuga á því að spila áfram í ensku úrvalsdeildinni ef hann fer frá Stamford Bridge. Arsenal og Tottenham hafa sýnt áhuga. (ESPN)

Dani Ceballos (23) vill frekar snúa aftur til Real Betis en að ganga alfarið í raðir Arsenal ef Real Madrid vill ekki fá hann til baka. Ceballos er hjá Arsenal á láni frá Real Madrid. (Estadio Deportivo)

Sean Dyche, stjóri Burnley, segist opinn fyrir því að ljúka ensku úrvalsdeildinni bak við luktar dyr með HM-sniði. (Telegraph)
Athugasemdir
banner
banner
banner