Fotbolti.net
31.03.26 - 21:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Umspilið fyrir HM: Ítalía missir af þriðja mótinu í röð

Ítalía fer ekki á HM.

Ítalía fer ekki á HM.

Canon

Mynd: EPA

Ítalía og Danmörk verða ekki á meðal þátttökuþjóða á HM í Norður-Ameríku í sumar. Það voru Bosnía og Tékkland sem tóku tvö síðustu plássin fyrir Evrópu á mótinu.

Það var leikið til þrautar í þessum tveimur viðureignum. Ítalía komst yfir snemma í Bosníu en Alessandro Bastoni fékk svo rautt spjald fyrir ljóta tæklingu undir lok fyrri hálfleiks. Bosnía jafnaði metin gegn tíu Ítölum og því þurfti að framlengja, og svo fara í vítaspyrnukeppni.
Umspilið fyrir HM: Tvö lið áfram og tvær framlengingar
TENGT EFNI

Umspilið fyrir HM: Tvö lið áfram og tvær framlengingar

Í vítaspyrnukeppninni voru leikmenn Bosníu mun svalari og þeir skoruðu úr öllum sínum spyrnum á meðan Ítalir klikkuðu á tveimur af þremur. Ítalía, sem varð heimsmeistari 2006, mun því missa af þriðja heimsmeistaramótinu í röð sem er í raun ótrúlegt fyrir eins mikla fótboltaþjóð.

Í Tékklandi tryggðu heimamenn sér farseðilinn á mótið með sigri gegn Danmörku í vítakeppni. Danir klikkuðu á þremur af fjórum vítaspyrnum sínum þar.

Kasper Högh, fyrrum leikmaður Vals, kom inn á í framlengingunni og jafnaði metin, en það dugði ekki til.

Þess má geta að bæði Bosnía og Tékkland unnu í vítaspyrnukeppni í undanúrslitunum líka.

Bosnía 1 - 1 Ítalía (Bosnía vann 4-1 í vító)
0-1 Moise Kean ('15 )
1-1 Haris Tabakovic ('79 )
Rautt spjald: Alessandro Bastoni, Ítalía ('41)

Tékkland 2 - 2 Danmörk (Tékkar unnu 3-1 í vító)
1-0 Pavel Sulc ('3 )
1-1 Joachim Andersen ('72 )
2-1 Ladislav Krejci ('100 )
2-2 Kasper Hogh ('111 )
Danir töpuðu í vító.

Danir töpuðu í vító.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.