31.05.05 - 12:24
Magnús Már Einarsson
Zeyer til Grindavík (Staðfest)

Zeyer er hér til hægri.


Zeyer er hér til hægri.

Michael Zeyer þýskur miðjumaður hefur fengið leikheimild með Grindvíkingum. Zeyer, sem verður 37 ára í júní á að baki 146 leiki í efstu deild í Þýskalandi með Kaiserslautern, Duisburg og Stuttgart og hefur hann skorað 14 mörk í þessum leikjum og því er um mjög reyndan leikmann að ræða.
Zeyer lék einnig með Waldorf Mannheim í þýsku 2. deildinni og hefur samtals spilað 325 leiki í tveimur efstu deildunum í Þýskalandi og skorað 32 mörk. Síðast var Zeyer svo á mála hjá liðið Fortuna Düsseldorf.
Hann hefur fengið leikheimild með Grindvíkingum og er því löglegur í næsta leik liðsins sem er gegn Fylki á útivelli 12.júní næstkomandi.
Hann hefur fengið leikheimild með Grindvíkingum og er því löglegur í næsta leik liðsins sem er gegn Fylki á útivelli 12.júní næstkomandi.
