31.05.05 - 17:23
Arnar Jóhannsson
Zuma til Bielefeld (staðfest)

Sibusiso Zuma

Sibusiso Zuma

Suður Afríski landsliðsmaðurinn Sibusiso Zuma hefur skrifað undir þriggja ára samning við Armenia Bielefeld. Leikmaðurinn er 29 ára gamall og hefur leikið með FC Kaupmannahöfn undanfarin ár.
Kauðverðið er ekki gefið upp en Zuma hefur verið þrálátlega orðaður við önnur lið undanfarin ár. Nokkur lið í enska boltanum hafa sýnt leikmanninum áhuga í gegnum tíðina en leikmaðurinn hefur haldið tryggð við Kaupmannahafnarliðið.
Leikmaðurinn er mjög kátur með að leika loksins í stærri deild en honum er ætlað að fylla það skarð sem Delon Buckley skilur eftir sig hjá Bielefeld, en hann er á förum til Dortmund.
"Ég er himinlifandi, þetta er frábært," sagði Zuma í samtali við Berlinske Tidende. "Þetta er stóra tækifærið mitt og ég er mjög ánægður. Ég mun gera mitt allra besta til að ná árangri þarna."
Niels-Christian Holmstrom framkvæmdastjóri FC Kaupmannahafnar þakkaði Zuma vel unnin störf fyrir félagið. "Félögin hafa komist að saamkomulagi og Zuma hefur samið um kaup og kjör við þá, hann fer til Bielefeld. Ég er ánægður fyrir hans hönd. Þó svo hann sé ekki að ganga til liðs við eitt af stóru liðunum er hann að fara í mjög góða deild og við skuldum honum það að greiða götu hans að því markmiði. Hann er besti leikmaðurinn í sögu FC Kaupmannahafnar," sagði Holmstrom.