Fotbolti.net
31.05.21 - 20:56
Alexandra Bía Sumarliðadóttir

DB: Ég er að njóta hvers augnabliks

Auglýsing
DB: Ég er að njóta hvers augnabliks
Canon

Mynd: ÍBV

Mjólkurbikarinn
ÍBV tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarsins þegar þær sigruðu Stjörnuna 2-1 á útivelli nú í kvöld. Delaney Baie Pridham, oftast kölluð DB, átti góðan leik og skoraði fyrra mark ÍBV í leiknum.

„Ég er hæstánægð, ég er svo glöð að við náðum þessum sigri og séum komnar áfram í næstu umferð," sagði DB eftir leik.

DB virðist smella vel inn í ÍBV liðið og hefur verið drjúg í markaskorun fyrir liðið.

„Ég elska að vera hérna, liðið hefur tekið mjög vel á móti mér og við höfum klikkað vel saman og erum að bæta okkur með hverjum leik, ég hlakka til næsta leiks í bikarnum"
ÍBV tekur á móti Selfyssingum í Pepsi-Max deildinni á laugardaginn, en Selfoss situr í toppsæti deildarinnar.

„Við einbeitum okkur bara að því að spila okkar besta leik og koma sterkar í leikinn, við vitum hversu hæfileikaríkt liðið okkar er. Það skiptir ekki máli fyrir okkur í hvaða sæti liðin eru, sama hvaða lið við spilum á móti þá er alltaf sama hugarfarið hjá okkur. Þannig okkur hlakkar til leiksins, við ætlum að mæta, spila fast og sækja sigurinn, sagði Delaney.

Delaney segist elska að vera á Íslandi. „Þetta er góð tilbreyting frá heiman, svo fallegt og ég elska menninguna hérna. Ég er að njóta hvers augnabliks."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.