Achraf Hakimi hefur átt frábæran feril en þessi 27 ára gamli Marokkói er orðinn sigursælasti Afríkumaður sögunnar.
Hakimi var í byrjunarliði PSG sem vann Arsenal eftir vítaspyrnukeppni í úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Hakimi var í byrjunarliði PSG sem vann Arsenal eftir vítaspyrnukeppni í úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Hakimi hefur unnið 19 titla á ferlinum en hann bætti met Samuel Eto'o og Yaya Toure sem unnu 18 titla á sínum tíma.
Hakimi hefur unnið frönsku deildina fimm sinnum, Meistaradeildina þrisvar, franska Ofurbikarinn þrisvar, franska bikarinn tvisvar, ítölsku deildina einu sinni með Inter, evrópska Ofurbikarinn, HM félagsliða, þýska Ofurbikarinn með Dortmund og spænska Ofurbikarinn með Real Madrid.



