Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 31. ágúst 2021 10:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Cavani til Barcelona?
Cavani
Cavani
Mynd: EPA
Barcelona er í viðræðum við Manchester United um kaup á Edinson Cavani.

Samkvæmt spænska fjölmiðlamanninum Gerard Romero eru viðræður vel á veg komnar og er Cavani opinn fyrir því að fara til Barca.

Manchester United er þó ekki á því að hleypa framherjanum í burtu svo auðveldlega og verður fróðlegt að sjá hvort eitthvað gerist í þessu máli í dag.

Það eru líkur á því að Cristiano Ronaldo vilji spila í sínu númeri, treyju númer sjö, en það er treyjan sem Cavani er með þessa stundina hjá United.

Ef Cavani fer hvergi þyrfti United að fá undanþágu svo Ronaldo geti fengið það númer. Cavani gæti þá fengið treyju númer 21 þar sem Daniel James er á förum frá United. Cavani spilar í treyju númer 21 hjá Úrúgvæ.

Uppfært 10:26:
Aðrir fjölmiðlamenn, þar á meðal Fabrizio Romano, segja að Cavani verði áfram hjá United nema eitthvað mikið gerist.
Athugasemdir
banner
banner
banner