31.08.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Robert Sánchez fer til Como

Mynd: Chelsea

Mynd: EPA

Mynd: Chelsea
Ítalska félagið Como er að tryggja sér markvörðinn Robert Sánchez á lánssamningi frá Chelsea. Hann mun berjast við Jean Butez um markmannsstöðuna undir stjórn Cesc Fábregas.

TENGT EFNI
Fabregas vill fá Sanchez frá Chelsea
Como var spútnik lið ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tryggði sér óvænt Meistaradeildarsæti. Fábregas er með mjög ungan leikmannahóp sem verður gríðarlega spennandi að fylgjast með í vetur.
Sánchez, sem hefur verið gagnrýndur í gegnum tíðina, er búinn að missa byrjunarliðssætið sitt hjá Chelsea eftir að félagið keypti Emiliano Martínez. Sánchez er 28 ára Spánverji sem spilaði 112 leiki á þremur árum hjá Chelsea. Hann er með fjögur ár eftir af samningi við félagið.
Como hefur byrjað nýtt tímabil á því að næla í fjögur stig í tveimur útileikjum. Fyrst gerði liðið 1-1 jafntefli við Udinese og sigraði svo stórveldi Napoli 1-2 um helgina.

Emi Martínez til Chelsea (Staðfest)

Mynd: EPA