Fotbolti.net
31.10.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Ætlar ekki að breyta leikstílnum þrátt fyrir tapið

Ætlar ekki að breyta leikstílnum þrátt fyrir tapið
Canon

Mynd: EPA

Hansi Flick þjálfari Barcelona segir að sér detti ekki í hug að breyta leikstílnum eftir tap í El Clásico slagnum gegn Real Madrid um síðustu helgi.
Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico
TENGT EFNI

Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico

Spánarmeistararnir tróna enn á toppi deildarinnar þrátt fyrir tapið, með 27 stig eftir 10 umferðir, en eru aðeins með tveggja stiga forystu á Atlético Madrid og þriggja stiga forystu á Real.

„Okkur finnst alls ekki gaman að tapa gegn Real Madrid, en við verðum að samþykkja tapið og læra af því. Það er ekki auðvelt þegar fjórir varnarmenn eru meiddir á sama tíma, við höfum verið að reyna að finna lausnir. Vonandi getum við bætt miðverði við hópinn í janúar," sagði Flick á fréttamannafundi í dag, áður en hann var spurður út í leikstílinn sóknarþenkjandi sem hann lætur liðið sitt spila - sem felur í sér að vera með gríðarlega háa varnarlínu. Ekki ósvipað varnarstílnum sem Ange Postecoglou vildi nota hjá Tottenham.

„Við erum ekki að fara að breyta okkar leikstíl eða hugarfari, við munum halda áfram að spila okkar fótbolta."

Flick var meðal annars spurður út í Frenkie de Jong og Alejandro Balde sem tóku báðir þátt í tapinu gegn Real Madrid. De Jong er nýkominn úr meiðslum á meðan Balde hefur fengið afar lítinn spiltíma í haust.

De Jong er 29 ára miðjumaður með tæp þrjú ár eftir af samningi við Barca, á meðan Balde er 23 ára og með tæp tvö ár eftir af samningi.

„Ég er fullkomlega sannfærður um að Frenkie de Jong sé nógu góður fyrir liðið. Hann er stórkostlegur leikmaður þegar hann er heill heilsu, hann er mjög mikilvægur partur af liðinu þegar hann er upp á sitt besta. Hann gerir leikmenn í kringum sig betri.

„Það vantar aðeins upp á sjálfstraustið hjá Balde þessa stundina. Þegar sjálfstraustið kemur aftur þá verður hann upp á sitt besta."
Ætlar ekki að breyta leikstílnum þrátt fyrir tapið
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla10017
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal11012
11Deportivo10011
12Espanyol11-111
13Osasuna10-1011
14Racing Santander10-1111
15Levante10-310
16Elche10-310
17Vallecano9-89
18Getafe10-109
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.