Fotbolti.net
31.10.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Aston Villa ætlar að lögsækja Carragher

Aston Villa ætlar að lögsækja Carragher
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa ætlar í mál við fótboltasérfræðinginn Jamie Carragher eftir orð sem hann lét falla um félagið í hlaðvarpsþætti á dögunum.
Aston Villa hefur gefið út yfirlýsingu vegna málsins og ætlar félagið að lögsækja Carragher vegna málflutnings hans, sem félagið telur vera skaðlegan.

„Aston Villa ætlar að lögsækja Jamie Carragher vegna óásættanlegra móðgana hans í garð félagsins og stuðningsmanna," segir í stuttri yfirlýsingu.

„Aston Villa ætlar ekki að leyfa neinum að stöðva uppgang félagsins í enska og evrópska boltanum."

Það sem fór fyrir brjóstið á Aston Villa er hvernig Carragher talaði um Unai Emery, þjálfara Aston Villa, og þjálfarastarfið hjá Manchester United sem gæti losnað ef Michael Carrick verður rekinn.

„Aston Villa er gott lið en félagið mun aldrei vera jafn stórt og Manchester United. Ég er viss um að hann (Unai Emery) myndi grípa tækifærið ef honum byðist að taka við stórveldi á ný," sagði Carragher.

„Það er ákveðin keðja í fótboltaheiminum hvort sem fólki líkar það eða ekki. Real Madrid fær bestu mennina frá Man Utd á meðan Man Utd fær bestu mennina frá liðunum fyrir neðan sig eins og Aston Villa. Þannig að grjóthaldið kjafti stuðningsmenn Aston Villa. Aston Villa verður aldrei Manchester United."

Carragher, sem starfar einna helst fyrir CBS í Bandaríkjunum og Sky Sports á Englandi, vakti hörð viðbrögð með þessum ummælum sínum en hann segir þau aðeins hafa verið til gamans gerð.


Aston Villa ætlar að lögsækja Carragher
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.