31.10.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Atlético er með í kappinu um Lisandro Martínez

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að það er ekki einungis Barcelona sem hefur áhuga á að krækja í Lisandro Martínez, varnarmann Manchester United og argentínska landsliðsins.

TENGT EFNI
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
Stórveldi Atlético Madrid vill einnig næla í miðvörðinn sem rennur út á samningi næsta sumar. Man Utd hefur möguleika á að virkja eins árs framlengingu á samningi Martínez en virðist ekki vera líklegt til að nýta sér það ákvæði.
Stjórnendur Rauðu djöflanna eru ósáttir eftir ummæli sem Martínez lét falla í kjölfarið af 4-1 tapi gegn Como í Meistaradeildinni og fær Argentínumaðurinn því mögulega að fara á frjálsri sölu næsta sumar.
Þá gæti varnarmaðurinn verið seldur í komandi janúarglugga ef nægilega gott tilboð berst.
Martínez er 28 ára gamall og hefur að undanförnu verið mikilvægur hlekkur í byrjunarliðum Man Utd og Argentínu.
Til gamans má geta að fjórir landsliðsfélagar hans frá Argentínu eru samningsbundnir Atlético Madrid, en í leikmannahópi Barcelona má ekki finna einn einasta samlanda hans.