31.10.26 - 11:23
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Chelsea og Man Utd: Fernandes snýr aftur - Alonso gerir fjórar breytingar

Bruno er kominn aftur í byrjunarlið Man Utd

Mynd: EPA

Estevao fær tækifærið hjá Alonso

Chelsea og Manchester United eigast við í fyrsta stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, en flautað verður til leiks á Stamford Bridge klukkan 12:30 í dag.
Starf Michael Carrick hangir á bláþræði, en Man Utd hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum sínum.
Lærisveinar Xabi Alonso hafa á meðan verið að gera ágætis hluti í deildinni, en þeir féllu úr leik í enska deildabikarnum eftir tap gegn Liverpool á dögunum.
Það eru nokkrar breytingar á báðum liðum en ein sérstaklega athyglisverð hjá United. Bruno Fernandes, fyrirliði liðsins, snýr aftur í byrjunarliðið eftir að hafa þurft að dúsa á bekknum í 3-0 tapinu gegn Bournemouth.
Hann og Carrick hafa nú hreinsað andrúmsloftið sín á milli eftir að Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið í kjölfar 4-1 tapsins gegn Como.
Matheus Cunha og Lisandro Martínez koma einnig inn í liðið, en Youri Tielemans, Ayden Heaven og Mason Mount setjast á bekkinn. Kobbie Mainoo er sömuleiðis kominn aftur eftir meiðsli og tekur sér sæti á varamannabekknum.
Alonso gerir nokkrar breytingar á sínu liði. Estevao, Cole Palmer, Marco Palestra og Levi Colwill koma inn fyrir Maxence Lacroix, Malo Gusto, Jordan Henderson og Danny Welbeck.
Chelsea: Penders, Acheampong, Fofana, Colwill, Palestra, Caicedo, Lavia, Palmer, Rogers, Neto, Estevao.
Man Utd: Lammens, Yoro, Maguire, Martínez, Dalot, Baleba, Andrey Santos, Bruno Fernandes, Cunha, Diallo, Mbeumo.

Your Blues. ????
— Chelsea FC (@ChelseaFC) October 31, 2026
#CFC | #CHEMUN https://t.co/pAHw7rFOdT
???? In the red corner today...
— Manchester United (@ManUtd) October 31, 2026
Come on United! ???????? https://t.co/WMIwU7EgWC

Estevao fær tækifærið hjá Alonso

Mynd: EPA