31.10.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Markaðsvirði leikmanna Man Utd og Tottenham snarlækkað

Mynd: Sky Sports

Mynd: Sky Sports
Vefsíða transfermarkt rekur meðal annars gagnagrunn með áhugaverðri tölfræði fótboltamanna í helstu deildum Evrópu og víðar, svo sem spilaðar mínútur, mörk skoruð, stoðsendingar og spjöld.

TENGT EFNI
Man Utd lélegasta félag Evrópu í leikmannaviðskiptum
Vefsíðan fylgist náið með félagaskiptum og samningamálum leikmanna og birtir áætlað markaðsvirði leikmanna.
Þegar markaðsvirði leikmanna úr ensku úrvalsdeildinni er skoðað er ljóst að leikmenn Manchester United og Tottenham hafa lækkað langmest í verði á síðustu árum.
Þegar leikmannahópar félaganna eru skoðaðir eru leikmenn metnir talsvert minna í dag heldur en þegar þeir voru keyptir. Stærsti munurinn er hjá Man Utd, þar sem áætlað virði leikmannahópsins í dag er 187 miljónum lægri heldur en kaupverð leikmannanna á sínum tíma.
Hjá Tottenham nemur munurinn rúmum 185 milljónum punda og í næstu sætum þar á eftir koma Liverpool, Newcastle, Aston Villa og Ipswich Town.
Á hinum endanum hefur markaðsvirði leikmanna Arsenal hækkað mest, eða um 270 milljónir sem er ekki mikið meiri hækkun en hjá Manchester City (tæpar 266 milljónir).
Crystal Palace er í þriðja sæti með rúmri 236 hækkun á markaðsvirði leikmanna og þar á eftir koma Hull City, Brighton og Bournemouth.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |