KV á þrjá leikmenn í úrvalsliði umferðarinnar í 1. deild eftir að liðið komst upp úr fallsæti með óvæntum 1-0 útisigri gegn ÍA. Atli Jónasson markvörður og varnarmennirnir Tómas Agnarsson og Benis Krasniqi eru allir í liðinu.
Haukar unnu góðan sigur gegn Selfossi og er Gunnlaugur Fannar Guðmundsson í liðinu. Grindavík vann mikilvægan sigur fyrir norðan og á tvo fulltrúa í liðinu.
Viktor Unnar Illugason var maður leiksins þegar HK vann Tindastól og BÍ/Bolungarvík á tvo leikmenn eftir frábæran 4-2 útisigur gegn Víkingi Ólafsvík.
Þá unnu Leiknismenn 3-0 sigur gegn Þrótti á útivelli og eru með tvo menn.
Ert þú á vellinum í 1. deildinni? Þú getur komið með tilnefningar í úrvalsliðið með því að senda á @elvargeir á Twitter.
Úrvalslið 9. umferðar 1. deildar:
Atli Jónasson - KV
Tómas Agnarsson - KV
Benis Krasniqi - KV
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson - Haukar
Daníel Leó Grétarsson - Grindavík
Sindri Björnsson - Leiknir
Kristján Páll Jónsson - Leiknir
Mark Tubæk - BÍ/Bolungarvík
Viktor Unnar Illugason - HK
Andri Rúnar Bjarnason - BÍ/Bolungarvík
Magnús Björgvinsson - Grindavík
Sjá einnig:
Úrvalslið 8. umferðar
Úrvalslið 7. umferðar
Úrvalslið 6. umferðar
Úrvalslið 5. umferðar
Úrvalslið 4. umferðar
Úrvalslið 3. umferðar
Úrvalslið 2. umferðar
Úrvalslið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir