Matt Eliason í Þrótti hefur slegið í gegn í tveimur fyrstu umferðum 1. deildarinnar og er aftur í úrvalsliðinu. Þróttur vann flottan sigur gegn KA en Rafn Andri Haraldsson er einnig í úrvalsliðinu.
Leiknismenn eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar. Markvörðurinn Eyjólfur Tómasson varði víti í 2-0 sigri gegn BÍ/Bolungarvík og er aftur í úrvalsliðinu og miðjumaðurinn Brynjar Hlöðversson heldur einnig sæti sínu.
HK-ingar fara betur af stað en margir héldu og gerðu jafntefli við Hauka á föstudag þar sem Andri Geir Alexandersson var flottur í vörninni.
Selfoss vann óvæntan sigur gegn Víkingi Ólafsvík og á tvo fulltrúa. Þá voru Grindvíkingar flottir og unnu verðskuldaðan sigur gegn ÍA þar sem Jósef Kristinn Jósefsson og Juraj Grizelj áttu góðan leik.
Verður þú á vellinum í 1. deildinni í sumar? Þú getur komið með tilnefningar í úrvalsliðið með því að senda á @elvargeir á Twitter.
Úrvalslið 2. umferðar 1. deildar:
Eyjólfur Tómasson – Leiknir
Bjarki Már Benediktsson - Selfoss
Andri Geir Alexandersson – HK
Luka Jagacic - Selfoss
Óttar Bjarni Guðmundsson – Leiknir
Jósef Kristinn Jósefsson – Grindavík
Rafn Andri Haraldsson – Þróttur
Brynjar Hlöðversson - Leiknir
Árni Einar Adolfsson - Tindastóll
Juraj Grizelj – Grindavík
Matt Eliason – Þróttur
Sjá einnig:
Úrvalslið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir